Texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson
Ólgandi, kitlandi aldan í fjörunni hlær. Gælandi , strjúkandi grasið á þúfunum grær. Blikandi, lónandi bláhvítur jökullinn sér skundandi, þjótandi skýin og mávanna her. Viðlag: Þetta er borg mín bæði og sveit ból fyrir fund minn og leit. Hér er himinninn hár og hafsjórinn blár. Barátta um frelsi hér barnsskónum sleit. Mjúklega brúnleita mýrifugl strengina strauk. Skarpsýna, hagorða skáldið við ljóðlínu lauk. Eitt tifandi andartak tíminn stóð hljóður og kyrr. Andandi, lifandi allir sem fóru hér fyrr. Viðlag: Þetta er borg mín….. Bjargandi, vaggandi baggar á hestum við tjörn. Grátandi, hlæjandi Gunnur og Jónar og börn. Dreymandi, hugsandi dugnaðarpiltar og –fljóð með heillandi, ögrandi hugmynd um alfrjálsa þjóð. Viðlag: Þetta er borg mín….. Beljandi, syngjandi bjallan hún hringir nú inn. Boðandi, veitandi bækur og lærdóm um sinn. En gangandi og sitjandi greinum við sögunnar hrif; áleitið, ögrandi Álftanesklukkunnar tif. Viðlag: Þetta er borg mín…..